Í Vorsabæ 2. búa Björn Jónsson og Stefanía Sigurðardóttir. Þau eiga 3 börn, Margréti, Jón Emil og Sigurbjörgu Báru.
Vorsabær 2. er í blómlegu landbúnaðarhéraði á Suðurlandi, um 80 km. frá Reykjavík. Björn og Stefanía hófu sinn búskap árið 1985 og hafa allan þann tíma stundað hrossarækt. Einnig eru á búinu nautgripir til kjötframleiðslu, um 40 kindur og fáeinar geitur.
Björn og Stefanía eru bæði búfræðingar frá Bændaskólanum á Hvanneyri og Björn hefur einnig lokið prófi frá Félagi Tamningamanna (FT).
Árið 2008 var tekið í notkun nýtt fjárhús og sama ár reiðhöll, sem er 16 x 42 m. að stærð. Árið 2009 var tekið í notkun nýtt hesthús. Í hesthúsinu er pláss fyrir 25 hross í eins hesta stíum og einnig eru stíur fyrir um 15 tryppi. Auk þess eru í húsinu rúmgóð kaffistofa og önnur aðstaða sem telst nauðsynleg í nútíma hesthúsi. Utan við reiðhöllina er 250 m. hringvöllur.
Yfirleitt er aðkomufólk starfandi á búinu við tamningar og annað. Oft er um að ræða ungt fólk frá öðrum löndum, sem óskar eftir að koma til Íslands að vinna við hesta og bæta við sig reynslu.
Í Vorsabæ 2. er hafin þjónusta fyrir fólk sem vill koma í heimsókn á sveitabæ og kynnast lífi og störfum á bænum. Reist hefur verið nýtt ferðaþjónustuhús undir starfsemina, en húsið er einnig hægt að taka á leigu fyrir hinn almenna ferðamann.Gestir geta komið í stutta heimsókn eða dvalið í nokkra daga eftir samkomulagi. Áhugasamir geta kynnt sér þjónustuna nánar með því að skoða dvöl á bænum hér á síðunni.
Vinátta og traust
Píla
Börnin
Smalamennska
Kleópatra
Stóðið rekið heim
   
           
<<Heim