Söluhross
Vorsabær 2, Skeiðum, 801 Selfoss, Iceland | tel. +354 486 5522 | gsm + 354 861 9634 | email: bjornjo@vorsabae2.com
   
 
 
 
 

F:Stirnir Vorsabæ2

IS2007187983

Rauðtvístjörnóttur hestur fæddur 2010.Reistur og með fallega yfirlínu. Háar og svifmiklar hreyfingar. Sýnir tölt og brokk.Föðurfaðirinn er Stáli frá Kjarri.  
M:Prinsessa IS1992284314
Prins
       
  F:Hlekkur Lækjarmóti

IS2005155102

Rauðskjótt hryssa fædd 2010 með góðar ættir að baki. Myndarlegt folald með háan fótaburð, rúmar hreyfingar og allan gang. Spennandi ræktunarhryssa.
 
M:Píla Vorsabæ 2 IS 2001287984
Ör
       
  F:Hlekkur Lækjarmóti

IS2005155102

Leirljós stjörnóttur foli. Fæddur 2010. Stórt og glæsilegt folald af góðum ættum. Háfættur og fagurlega skapaður. Sýnir brokk og tölt með miklum fótaburði. Spennandi stóðhestefni.
 

M:Molda Lundi

IS2000235708
Léttfeti
       
 

F:Stáli Kjarri

IS1998187002
Fífilbleikur stjörnóttur veturgamall foli ( geldingur) Faðirinn er hinn háttdæmdi Stáli frá Kjarri og Nös móðir Fífils er flugrúm hágeng klárhryssa. Fallegur og einstkalega ljúfur og geðgóður.Sýnir brokk og tölt með háum fótaburði. Efni í flottan klárhest.
 
M:Nös Vorsabæ 2 IS1998287983
Fífill IS2009187987
       
  F:Helmingur Hlemmiskeiði

IS2005187937

Rauðskjóttur 2ja vetra foli (geldingur) með góðar ættir að baki. Afinn er Álfur frá Selfossi sem nú þegar er farinn að stimpla sig inn sem ræktunarhestur. Mjög léttbyggðu, reistur og fríður foli. Sýnir gott rými, allan gang og mikinn fótaburð. Gott geðslag og góður í umgengni.
 
M:Drottning Vorsabæ2 IS2002287981
Álfur IS2008187986
       
  F:Segull Hátúni

IS2003184743

Sylgja er fædd 2008 og er brúnlitförótt hryssa. Spennandi og sjaldgæfur litur. Sylgja sýnir frábærar hreyfingar. Hún hendist um á svifmiklu brokki og grípur í tölt þess á milli. Faðirinn Segull er í Svíþjóð núna og í sinni fyrstu keppni þar var hann í 1.sæti í fjórgangi.

M:Syrpa Vorsabæ 2

IS2004287984
Sylgja IS2008287986
       
  F:Hlekkur Lækjarmóti IS2005155102
Rauðstjörnótt veturgömul hryssa af góðum ættum. Myndarleg og hágeng. Mjög róleg og auðveld í umgengni. Efni í frábæra klárhryssu.

M:Slaufa Neistastöðum

IS1985287992 
Stássa IS2009287981
       
 

F:Forseti

Vorsabæ 2

IS1996187983

Rauðstjörnótt glófext veturgömul hryssa af mjög góðum ættum. Léttbyggð og háfætt. Fer um á öllum gangi og sýnir gott rými og fótaburð.Alsystir hennar er 1.verðlauna hryssan Snerpa með í aðaleinkunn 8,27. Efni í ræktunarhryssu.

M:Kolfreyja Vorsabæ 2

IS1986287981
Freyja IS2009287982
       
  F:Kjarni Þjóðólfshaga
IS2000181814
2ja vetra hryssa með pottþéttar ættir á bak við sig. Fríð og einstklega fim og rúm á gangi og lítur út fyrir að vera efni í alhliða hryssu. Var í 1.sæti á folaldasýningu haustið 2008.

M:Kolfreyja Vorsabæ 2

IS1986287981
Kjarnorka IS2008287982
       
 

F:Sædynur Múla

IS2002155490
Rauðstjörnótt 2ja vetra hryssa undan 1.verðlauna foreldrum. Stór og myndarleg með vel settan háls. Lofthá og hlutfallagóð í byggingu. Glæsileg í allri framgöngu og sýnir brokk og tölt. Faðirinn Sædynur fékk m.a. 9.5 fyrir fegurð í reið.

M:Molda Lundi

IS2000235708
Halastjarna IS2008287985
       
 

F:Forseti

Vorsabæ 2

IS1996187983

Móvindóttur veturgamall foli (geldingur) sem er ekki bara litfagur, heldur líka frábærlega léttbyggður og mjúkur í hreyfingum. Fer um á brokki og tölti. Ljúfur og auðveldur í umgengni.
M:Tíska Vorsabæ 2 IS2000287986
Vígar IS2009187991
       
 

 

 

 

       

<<Heim