Um 90% af núlifandi hrossum í Vorsabæ 2 eru komin út af Litlu-Jörp 1 frá Vorsabæ 1 sem Björn eignaðist 1978, þá 15 vetra gamla. Hún var tamin og hafði verið notuð sem reiðhryssa af eigendum sínum í Hafnarfirði. Björn fékk Þorkel Bjarnason, þáverandi hrossaræktarráðanaut, til að dæma hana þá um vorið og fékk hún 8,00 fyrir byggingu og 7,78 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 7,89 svo til óþjálfuð. Einnig keppti hann á henni seinna um sumarið á innanfélagsmóti og lenti þar í 3. sæti í B-flokk og 4. sæti í tölti. Frægasta afkvæmi Litlu-Jarpar 1 er Gassi frá Vorsabæ 2 sem er nú í Danmörku og vekur alls staðar athygli fyrir mikla útgeislun og fegurð á tölti. Undan henni eru einnig Litla-Jörp 2 sem er undan Þresti frá Teigi, Kolfreyja undan Kolgrími frá Kjarnholtum og Tign undan Hrafni frá Holtsmúla og því alsystir Gassa. Þær hafa allar gefið af sér 1. verðlaunar hross (Þöll, Forseta, Snjall, Bjargþóru, Snerpu, Alvar og Brynju). Einnig eru í notkun hryssur sem Stefanía kom með frá Neistastöðum og hafa þær gefið góð afkvæmi. Má þar m.a. nefna Össu, hæst dæmdu hryssuna í Danmörku árið 2000 og Galsa sigurvegara í A-flokki hjá Fáki árið 2001. .
  Ff. Léttir, V. Geldingaholti
F. Glóblesi, Eyvindarhólum  
  Fm. Grása, Eyvindarhólum
   
  Mf. Blakkur, Úlfsstöðum
M. Freyja, Vorsabæ 1  
  Mm. Mósa, Vorsabæ 1
Formóðirin Litla Jörp 1 með Elja undan Þresti frá Kirkjubæ
 
Murneyri 1978, töltúrslit. Hrímnir og Jóhann, Steinunn og Skúli,
Háleggur og Rosemarie, Litla Jörp 1 og Björn, Fífill og Árni
Litla Jörp 1 og Litla Jörp 2
Helstu áherslur í ræktuninni eru falleg frambygging, há og framgripsmikil fótahreyfing og gott geðslag. Einnig er lögð áhersla á litafjölbreytni og eru t.d. margar af ræktunarhryssunum skjóttar.
Helstu ræktunarhryssur í dag:
Litla Jörp 2 IS1983287049
Tign IS1985287981
Kolbrún IS1993287989
Kolfreyja IS1986287981
Gletta IS1985287994
Slaufa IS1985287992
Snerpa IS1999287983
Hrefna IS 1998287988
Alda IS1994287984
Hviða IS1990235517
Hrina IS1997287982
Nös IS1998287983
 
   
<<Heim