Fréttir
 
 
 
12.júlí 2010  
Enn eru að bætast við folold og nú hefur Tíska eignast jarpa hryssu sem er undan Forseta. Þetta er frítt folald sem fer á öllum gangi. Það er dálítið sérstakt hvað augun eru ljós í folaldinu en þau eiga kannski eftir að dökkna.
 
Tískudóttir
           
12.júlí 2010  
Birnir Snær dvaldi hjá afa og ömmu í sveitinni í nokkra daga. Hann komst að því að það er margt öðruvísi í sveitinni heldur en í borginni. Hann vandist dýrunum og lék sér m.a. við nýfædda kiðlinga í grasinu.
 
Ungviði að leik.
           
11.júlí 2010  
Við höfum haft það í huga í nokkurn tíma að fá okkur íslenskar hænur. Nú hefur loksins orðið af því. Þetta eru 6 ungar í ýmsum litum sem við fengum hjá Bjarna Sig. á Torfastöðum í Fljótshlíð. Þær vaxa og dafna vel og svo væntum við fyrstu eggjanna í október.
 
Hænsnastofninn
           
27.júní 2010  
Við erum með inni 2.vetra og 3. vetra tryppi og erum að vinna í þeim. Sigurbjörg sem er núna í sumar að vinna í Bræðratungu nýtti sér helgarfríð til að vinna í merinni sinni henni Hrund en hún er 2. vetra og er undan Hrinu og Forseta.
 
Sigurbjörg og Hrund
           
26.júní 2010  
Fyrsti kiðlingur ársins er loksins fæddur en fengitíminn mistókst dálítið og seinkaði í vetur. Það er geitin Skrína sem nú er borin og á þetta svartflekkótta hafurkið.
 
Kiðlingar
           
20.júní 2010  
Það er komin ný tík á bæinn eftir að tíkin okkar hún Píla veiktist og dó í byrjun maí. Sú nýja var sótt að Flekkudal í Kjós en hún er tveggja og hálfs mánaðar gömul Border Collie og hefur hlotið nafnið Flekka.
 
Flekka á heimleið
           
16.júní.2010  
Er við vorum að drekka miðdegiskaffið tókum við eftir því að Molda var að byrja að kasta. Það varð uppi fótur og fit því að Molda hefur átt erfitt með að koma folöldunum frá sér. Allt gekk vel með smá aðstoð og leirljóst hestfolald með halastjörnu leit dagsins ljós. Það er búið að fá nafnið Léttfeti, eftir hesti sem ég átti einu sinni. Léttfeti er stórglæsilegur, háfættur léttbyggður með grannan og velsettann háls. Brokkar á hægu en grípur svo í tölt. Léttfeti er undan Hlekk frá Lækjamóti.
 
Einn leirljós.
           
13.júní.2010  
Baka kastaði í morgun móálóttu hestfolaldi. Þetta er fyrsta folaldið hjá Böku. Það er frekar lítið eins og oft er með frumburð. Það sýnir allan gang. Baka er móvindótt og er frá Tryggva í Bár. Hún er einstaklega geðgóð flugvökur alhliðahryssa, með góðum fótaburði. Folaldið er undan Stirni frá Vorsabæ 2.
 
Baka og sonur
           
12.júní.2010  
Þá er Snerpa köstuð. Hún kom með brúnt hestfolald. Það er hlutfallagott, ágætlega lofthátt og með góða yfirlínu. Fer um á tölti og brokki. Folaldið er undan Hlekk frá Lækjamóti.
 
Snerpusonur
           
11.júní.2010  
Í dag vorum við að setja graðfolana út á grös, 10 veturgamla fola og einnig 2 tveggjavetra og 1 fjögravetra.Þeir voru heldur kátir og hlupu um en svo tók löngunin í grængresið völdin. Fremstur á myndinni hér til hliðar er Fagri-Blakkur undan Forseta og Nös. Svo kemur Hreyfill undan Dug frá Þúfu og Kolbrúnu og seinastur er Vængur undan Eið frá Oddhól og Öldu.
 
Líf og fjör
           
11.júní.2010  
Þessir þrír elstu eru allir til í að komast í hólf hjá merum. Ef einhver hefur áhuga á að fá spennandi vel ættaðan fola þá er um að gera að hafa samband í síma 8619634 eða 4865522
 
Fagri-Blakkur
           
10.júní 2010  
Kolbrún átti sitt áttunda folald og í þetta sinn er það rauðstjörnótt hryssa undan Mjölni frá Hlemmiskeiði. Fyrsta folaldið hjá henni var Evíta en síðan hefur hún átt 6 hestfolöld. Þrír þeirra eru seldir til útlanda sem stóðhestar. Loksins kom aftur hryssa. Hún er áberandi léttbyggð og með langan háls. Það verður gaman að fylgjast með henni í framtíðinni.
 
Kolbrúnardóttir
           
6.júní 2010  
Þegar við vöknuðum í morgun sáum við að Evíta var að kasta fyrir utan svefnherbergisgluggann og það var greinilegt að það gekk ekki sem skyldi hjá henni. Við rukum út og hjálpuðum henni enda mátti varla seinna vera en hún var greinilega þreytt og þakklát fyrir hjálpina.Þetta er fyrsta folaldið hennar, rauðskjótt hryssa undan Hlekk. Það var fljótt að standa upp en heldur brösuglega gekk hjá því að finna spena á móðurinni. Með smá aðstoð frá okkur komst hún loks á bragðið. Folaldið er bráðlaglegt og notar aðallega brokk.
 
Evíta og dóttir
           
6.júní 2010  
Píla kastaði rauðskjóttu merfolaldi í nótt. Faðir þess er Hlekkur frá Lækjamóti. Þetta er myndarlegt, stórstígt folald og sýnir allan gang.Píla átti einnig merfolald í fyrra með Hlekk og sú heitir Skör. Hún er ekki stór en mjög hlutfallagóð, fríð, faxprúð og fer um á brokki og tölti.
 
Píla og dóttir
           
31ma.í 2010  
Þessa dagana höfum við verið að halda Glettu undir Forseta. Við erum að vonast til að fá undan henni hryssu næsta ár en hún hefur skilað okkur fáum hryssum og þær sem hafa fæðst eru allar seldar.
 
Kostur og Vignir
 
Kostur og Vignir
       
31ma.í 2010  
Kostur undan Glettu og Forseta var sýndur nú um helgina í Svíþjóð. Kost seldum við Märtu Marklund þegar að hann var 2.vetra. Hann fór í mjög góðan dóm 8,22. Fékk fyrir byggingu 8,39 þar af 9,5 fyrir prúðleika, 8,5 fyrir höfuð, háls og herðar, samræmi, fótagerð og hófa.Fyrir hæfileika fékk hann 8,10. Þar af 9 fyrir tölt, vilja/geðslag og fegurð í reið og 8.5 fyrir brokk og stökk. Í yfirlitinu gleymdi Vignir að sýna skeiðið. Til hamingju með Kost Märta.
 
Kostur og Vignir
           
31ma.í 2010  
Hrina kastaði í gær rauðskjóttu hestfolaldi undan Hlekk frá Lækjamóti. Þetta er háfætt og grannbyggt folald með mjög skásetta bóga. Það notar mest brokk en hefur sýnt tölt líka. Sigurbjörg hefur verið að temja fyrsta afkvæmi Hrinu hana Silfurdís. Í vetur var hún í öðru sæti í samanlögðu í unghrossakeppninni á henni.
 
Hrinusonur
           
31.maí 2010  
Gola er köstuð móvindóttu merfolaldi eða jafnvel móálóttvindóttu eins og hún er sjálf. Folaldið er undan Hvin frá Vorsabæ1 en Sigurbjörg eignaðist folatoll undir hann í fyrra og fékk þá Golu lánaða til að halda henni undir hann. Þannig að Sigurbjörg á þetta fallega folald sem fer um á brokki og tölti, en þó aðallega á hröðu stökki og leikur sér mikið.
 
Goludóttir
           
24. maí. 2010  
Nú er hestapestin komin til okkar. Við höfum tekið þá ákvörðun að sleppa öllum tamninhrossunum út á tún. Þau hafa það náðugt þar með rúlluhey til að grípa í. Tíminn verður notaður í að gera við girðingar og jafnvel að setja upp nýjar eða eins og einhver sagði þá verða mörg hrossabú vel girt eftir sumarið. Einnig ætlum við að nota tímann til að vinna létt í ungviðinu og erum við núna að vinna í veturgömlu tryppunum. Hér til hliðar er einn veturgamall undan Forseta og Gasalegu-Skutlu, gríðarlega myndalegur.
 
Völundur.
           
18. maí. 2010  
Nýting á ferðaþjónustuhúsinu hefur verið góð að undanförnu og hafa þar gist ýmist innlendir eða erlendir gestir. Margir vilja fá að skoða dýrin og þá hefur sauðburður sérstakt aðdráttarafl. Þýska stúlkan á myndinni er aðeins 2ja ára, en hún leit í fjárhúsið og hesthúsið á hverjum degi á meðan að hún dvaldi hér.
 
Í fjárhúsinu.
           
18. maí 2010  
Sauðburður hófst þann 12. maí og er nú vel á veg kominn. Alls eru 44 ær og 2 gemlingar sem eiga að bera þetta vorið. Þetta er annasamur og spennandi tími.
 
Sauðburður
           
17.maí 2010  
Gletta kastaði í gær rauðskjóttu hestfoldi undan Stirni. Gletta er orðin 25 vetra gömul og hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá okkur. Þegar að hún var að fara að kasta fannst okkur að folaldið snéri ekki rétt og að hún mundi þurfa aðstoð. Því var kallaður til dýralæknir og ekki veitti af því folaldið var stórt. Allt gekk vel að lokum og nú gengur þetta myndarlega og háfætta folald við hlið móður sinnar á túninu.
 
Gletta og folald
           
9.maí 2010  
Nú er fyrsta folaldið fætt en það er undan Nös og Stirni. Það er brústjörnótt hestfolald frekar laglegt og fer um á mjúku tölti.
 
Fyrsta folaldið
           
8. maí 2010  
Þá er hann Segull seldur úr landi. Það er Elin Vidberg í Svíþjóð sem er nýr eigandi af Segli en hann flaug út í morgun og hleypur nú um í nýjum heimkynnum.Elin var hér í verknámi í febrúar og féll þá alveg fyrir þessum töffara.
 
Segull í Svíþjóð
           
3. maí 2010  

Við leigjum út ferðaþjónustuhús hérna við bæinn. Einnig bjóðum við gestum upp á að fylgjast með daglegu lífi eða taka þátt í bústörfum. Þriggja barna fjölskylda frá Svíþjóð gisti í nokkrar nætur. Þau fengu hjá okkur 1 dag af "sveitalífi" og tóku þátt í daglegum bústörfum. Börnunum þótti spennandi að fóðra dýrin og kynnast þeim.

 
Svíar í heimsókn.
           
19. april.2010  
En sigurvegarinn á mótinu um helgina í unglingaflokki var Gunnlaugur Bjarnason á hestinum Klakk frá Blesastöðum 2a en Klakkur er undan Forseta frá Vorsabæ 2
 
Gunnlaugur og Klakkur
           
19. april.2010  
Í unglingaflokki lenti Sigurbjörg í þriðja sæti samanlagt eftir veturinn á Blossa en í fyrsta sæti var Rosmarie Tómasdóttir á Blær frá Vestra-Geldingaholti í öðru sæti var Viktoría Larsen á Fjallaskjóna frá Uppsölum í fjórða sæti var Björgvin Ólafsson á Skugga frá Hrepphólum og í fimmta sæti var Guðjón Rafn Sigurðarson á Gretti frá Hólmi.
 
Unglingaflokkur
           
19. april.2010  
Þriðja og seinasta vetramóti Smára lauk nú um helgina.Sigurbjörg mætti með hryssuna sína hana Silfurdís í unghrossakeppnina og var í öðru sæti samanlagt. Í fyrsta sæti var Gústaf Loftsson á Gýgju frá Miðfelli, í þriðja sæti var Guðmann Unnsteinsson á Blúndu frá Arakoti og í fjórða sæti var Helgi Kjartansson á Röst frá Hvammi 1.
 
Unghrossakeppni
           
17.april.2010  
Var í dag að fylgjast með gosinu með það í huga að ná góðum myndum af því. Það tókst nú í kvöld.Við erum sem betur fer laus við öskuna en hugsum með hryllingi til bænda sem glíma við þann vágest þessa dagana.
               
17.april.2010  
Eldgosið í Eyjafjallajökli hefur verið hulið skýjum þangað til í dag og þá kom tignarleiki þess í ljós þegar stórir gosbólstrar sáust stíga hátt upp í himininn.
               
28.mars.2010  
Petronella var að hætta hér eftir tæplega 3 mánaða dvöl.Hún hefur hjálpað okkur við alla daglega vinnu og aðstoðað við hrossin. Hún hefur verið iðin og þægileg á heimilinu.Á myndinni er hún á Sóma. Hann er stór og fallegur og snyrtilegur reiðhestur.
 
Petrónella og Sómi
           
27.mars 2010  
Sigurbjörg skellti sér á annað vetramót Smára og keppti þar á Silfurdís sinni í flokki unghrossa og lenti þar í 2 sæti.Silfurdís er hennar fyrsta hross í ræktun og hefur hún tamið hana algjörlega sjálf. Einnig keppti Sigurbjörg á Blossa í unglingaflokki og þar voru þau lika í 2 sæti. Silfurdís og Blossi eru bæði undan Snjall .
 
Sigurbjörg og Silfurdís
           
15.mars.2010  
Þá er hann Stirnir farinn til Frakkland en Sophie og Martin keyptu hann af okkur fyrrí vetur.Hann verður 3.vetra í vor en við notuðum hann töluvert seinasta sumar.Hann lenti í einhverjum áflogum við jafnaldra sína á nýja heimilinu og þurfti að taka á honum stóra sínum en það er nú allt að jafna sig.Stirnir er undan Kolbrúnu og Stála.
 
Stirnir
           
3.mars.2010  
Nú er Elin Vidberg búin að ljúka verknáminu og farin aftur til Svíþjóðar.Hún hefur staðið sig frábærlega og er greinilega ekki neinn viðvaningur.Hér er hún á Sigurrós. Hún er viljug fimmgangs hryssa undan Forseta.
 
Elin og Sigurrós
           
13.feb.2010  
Fengum til okkar vini og vandamenn sem aðstoðuðu okkur við að reka að stóðið og taka inn fleiri folöld og tamningahross. Einnig snyrtum við hófa á þeim hrossum sem á þurftu að halda. Um kvöldið var haldið upp á góðan dag með grillveislu.
 
Gestir
           
12.feb. 2010  
Nú er hjá okkur verknemi frá hestaskólanum Vången í Svíþjóð. Hún heitir Elin Vidberg og ætlar að vera hérna í 3 vikur.Á myndinni eru hún og Petronella að gefa hrossunum heyið sitt.
 
Elin og Petronella
           
28.jan 2010  
Útigangshrossin hafa það aldeilis gott þessa dagana. Einmuna veðurblíða alla daga,auð jörð,hitastig yfirleitt + megin og hefur jafnvel komist í 8°C. Sennilega er það eins með hrossin og mannfólkið að hafa aldrei áður kynnst slíku tíðarfari á þorranum.
 
Stóðið
           
20.jan 2010  
Við höfum verið að raka kviðinn á hrossunum sem eru á húsi, en það auðveldar að halda þeim hreinum. Á myndinni er Björn að raka Væng, móvindskjóttan stóðhest á 4.vetri. Vængur tók þessum gjörningi vel, enda geðprúður foli og gengur vel að temja hann.
 
Vængur Klipptur
           
8.jan 2010  
Við höfum tekið því rólega yfir hátíðir og hestarnir fengið frí, en nú höfum við fengið stúlku frá Svíþjóð til starfa og allt verður sett í fullan gang að temja gæðingsefnin.
 
Petronella
           
6.jan 2010  
Birnir Snær varð 1 árs í dag. Hann hélt upp á afmælið sitt í sveitinni hjá ömmu og afa og bauð frændfólki í kökuveislu. Mamma hans, Margrét fékk að sjá um bakstur og slíkt.
 
Birnir Snær
           
20.nóv.2009  
Álfgrímur undan Glettu og Forseta er seldur til Danmerkur.Það eru þau Elisabeth og Peter Röge sem kaupa hann. Þau komu í sumar til að skoða Glettu en þau eiga 10 vetra hest undan henni. Þeim leist svo vel á Álfgrím að þau slóu til og keyptu hann.Albróðir Álfgríms, Kostur er í Svíþjóð og gerir það gott þar. Sjá frétt 30 júní.Ég tók Álfgrím í smá taumvinnu áður en hann fór frá okkur. Hann tók því vel og vildi greinilega hlusta á símtalið sem ég fékk á meðan leikur okkar stóð yfir.
 
Björn og Álfgrímur
           
19.nóv.2009  
Martina frá Svíþjóð hefur verið hér í nokkurn tíma sem verknemi frá skólanum Vången. Skólinn er menntakóli með hestabraut bæði fyrir stóra brokkhesta og íslenska hesta.Við gáfum henni góðar einkunnir þegar að hún fór og átti hún það vel skilið. Nú er nýkominn tamningamaður til okkar sem ætlar að vera fram að jólum. Hann heitir Högni og á heima í Þykkvabæ.
 
Martina og Högni
           
17.nóv.2009  
Við eru öðru hvoru að heyra frá ánægðum eigendum Forseta afkvæma.Marianne Larsen fá Danmörku sendi okkur myndir af Kveik frá Neðra-Seli sem hún á og er mikið ánægð með bæði skapgerð og ganghæfileika og einnig virðist hann vera gríðarlega fallegur.
 
Kveikur Neðra-Seli
           
11.nóv.2009  
Við fengum e-amil frá Michèle í Sviss en hún á Gassasoninn Bendil frá Sauðafelli.Hún er mjög ánægð með hann og fræddi okkur á því að Bendill hefði einu sinni unnið 250 m skeið á Landsmóti árið 1998 á tímanum 22,61 sek. Þegar að ég gogglaði Bendil þá komst ég að því að hann er gamall keppnishestur hjá Ragnari Hinrikssyni. Ragnar vann einu sinni 5- gang á honum á móti hjá Fák og besta tíma á skeiði náðu þeir á Æðarodda ´98 eða 21,9 sek.
 
Bendill Sauðafelli
           
7.nóv.2009  
Tók mig til og setti gamla traktorinn hans pabba í gang og keyrði hann hér um til að liðka hann. Sá gamli rauk í gang í fyrsta starti.Þess má geta að traktorinn er af árgerð 1955. Bogi frá S-Brúnavöllum gerði traktorinn upp fyrir tveimur árum. Hann er einn af þessum mönnum sem þarf ekki að flagga prófgráðum til að ráða við svona verkefni en með sífelldu grúski nær hann tökum á verkefninu.Ég keyrði þennan traktor mikið í gamla daga og við höfum brallað margt um tíðina.
 
Tveir jafngamlir
           
6.nóv. 2009  
Þá er hann Gunnar Jónsson frá Skeiðaháholti hættur hjá okkur, en hann var í sumarfríinu sínu að temja fyrir okkur.Það er búið að vera frábært að hafa hann þennan mánaðartíma og tryppin hafa tekið framförum undir hans leiðsögn. Hann fer mikið vel að hrossum og hefur brennandi áhuga á öllu sem að hestamennsku snýr.
 
Gunnar Jóns. og Glóðar
           
31.okt.2009  
Hátíð frá Hlemmiskeiði 3 (moldótt)var ekki bara efst hjá dómaranum heldur var hún einnig valin í fyrsta sæti af áhorfendum. Eins og fyrr segir er hún undan Mjölni frá Hlemmikeiði 3 sem fór í feikna góðan dóm í vor aðeins 4 vetra. Hann er greinilega að stimpla sig heldur hressilega inn sem kynbótahestur þar sem þrjú mætt afkvæmi undan honum á sýningunni röðuðu sér öll í verðlaunasæti þ.e. í 1.3. og 5. sæti.Eigendur Hátíðar eru Inga Birna Ingólfsdótti, Árni Svavarsson og Arnar Árnason.
 
Inga Birna og Arnar.
           
31.okt.2009  
Alls mættu 30 folöld á sýninguna frá 10 bæjum.Efstu 6 voru:Hátíð Hlemmiskeiði 3.F: Mjölnir Hlemmiskeiði M: Alda Blesastöðum1a.Sorti E-Brúnavöllum.F: Óskar Blesastöðum1a M:Fríða Y-Bægisá.Loftfari Húsatóftum 1a F: Mjölnir Hlemmiskeiði3 M:Kolbrá Húsatóftum1a. Páll Vorsabæ2. F: Öfjörð Litlu-Reykjum. M:Alda Vorsabæ2.Glæsir Fjalli.F:Mjölnir Hlemmiskeiði 3a.M:Birta Núpi.Dökkvi Flatey.F:Dagur Hvoli.M:Dimma Breiðabólstað.
 
Arnar,Inga Birna,Sigurlín,Elín, Stefanía,Hrönn,Bára.
           
31.okt.2009  
Við héldum árlega folaldasýningu í samstarfi við Hermann Karlsson E-Brúnavöllum.Að þessu sinni var sýningin haldin í reiðhöllinni hér hjá okkur. Margt var um manninn og greinilegt að mikill áhugi er hjá fólki á öllum aldri fyrir svona sýningu.Óðinn Örn Jóhannesson fékkst í það vandasama verk að lýsa folöldum og meta þau.Folaldið Páll frá Vorsabæ 2 lenti í 4. sæti í röðun dómarans. Páll er undan Öldu frá Vorsabæ 2 og Öfjörð frá Litlu-Reykjum.
 
Páll og Alda
           
25.okt.2009  
Við létum fara með grjótmulningsvél á hringvöllinn. Það var Eiríkur í Gígjarholtskoti sem vann verkið. Okkur sýnist mölin hafa mulist vel saman við vikurinn og moldina.Svo er hugmyndin að fá leirblandað efni ofan á til að má meiri þéttleika í yfirborðið
 
Reiðvöllur tættur
           
12.sept 2009  
Réttardagurinn rann upp. Við sendum ekki fé á afrétt en látum okkur samt sem áður ekki vanta. Flestir á heimilinu fóru ríðandi í réttirnar. Birnir Snær mætti auðvitað í réttirnar og brá sér á bak.
 
Birnir Snær á hestbaki.
           
8.sept 2009  
Vinur okkar Gunnar Már Gunnarsson var sendur í sveitina. Hann vinnur hjá Líflandi eins og alþjóð veit og selur bændum vörur þeim tengdum. Hann fékk einnig verklega kennslu í girðingavinnu og útskrifaðist með fyrstu einkunn í þeim fræðum.
 
Björn og Gunnar
           
8.sept 2009  
Malin og Jessica eru búnar að vera í verknámi hjá okkur í tæpan mánuð og aðallega verið að vinna í hestunum og vinnu þeim tengdum. Þar á meðal er girðingavinna. Svona eftirá að hyggja þá er ekki ráðlegt að halda um lykkjuna þegar að þær negla heldur láta þær um það sjálfar.
 
Malin og Jessica
           
3.sept.2009  
Við erum búin að uppfæra sölusíðuna og eru þar mörg álitleg folöld ásamt tömdum reiðhestum og merum af ýmsu tagi til sölu.
 
Hrymur
           
2.sept.2009  
Nú eru smiðirnir mættir á ný og teknir til við að klára hesthúsbygginguna. Þeir eru að einangra og klæða veggina að utan og svo er einnig eftir að ganga frá loftglugga.
 
Ágúst og Leifur
           
2.sept.2009  
Hjá okkur starfa nú tvær stúlkur í verknámi frá Dille Gård í Svíþóð.Þær munu vera hér í einn mánuð.Þá er vinur okkar Gunnar Már Gunnarsson staddur hér í nokkra daga. Þau hafa nóg að gera við að þjálfa hrossin.
 
Jessica, Gunni og Malin
           
17.ágúst 2009  
Við fjölskyldan höfum undanfarna daga verið að setja upp gerði við hesthúsið. Við steyptum niður stólpana og svo skrúfuðum rörin saman og festum við stólpana með þartil gerðum samsetningum sem við fengum í Líflandi.
 
Jón Emil og Sigurbjörg Bára
           
17.ágúst 2009  
Þá er fætt seinasta folaldið hjá okkur í sumar en það kom í heiminn 12. ágúst.Þetta er brúnskjóttur hestur undan Öldu og Öfjörð frá L-Reykjum, en hann er undan Grun frá Oddhól og Hnyðju frá L-Reykjum. Folaldið er standreist og lofthátt eins og sést á myndinni.Alda er komin í girðingu hjá Hlekk.
 
Öldusonur
           
17.ágúst 2009  
Við höfum nú sónað 10 hryssur af þeim sem voru hjá Hlekk frá Lækjamóti í sumar. Allar reyndust með fyli. Við eigum reyndar tvö folöld undan honum og hér á myndinni er annað þeirra. Móðir þess er Slaufa.
 
Hlekksdóttir
           
15.ágúst 2009  
Sigurbjörg Bára og Blossi urðu í fyrsta sæti í Unglingaflokki.Einnig fékk hún ásetu verðlaun í sínum flokki. Í öðru sæti var Gunnlaugur á Tvisti frá Reykholti. Bryndís Heiða í þriðja sæti á Blæ frá V-Geldingaholti. Guðjón Örn var í fjórða sæti á Kenningu frá Skollagróf og Sóley var í fimmta sæti á Gusti frá V-Geldingaholti.
 
Verðlaunaafhending
           
15.ágúst 2009  
Sigurbjörg Bára hefur verið að byggja upp nýjan keppnishest í sumar þar sem Evíta sem hún hefur keppt á undan farin 2 ár er komin í folaldseignir. Blossi er úr heimaræktun, mátulega skyldleikarætaður undan Kolfreyju og Snjalli. Það er alltaf gaman að geta mætt með hross í keppni úr eigin ræktun.
 
Sigurbjörg Bára og Blossi
           
15.ágúst 2009  
Í dag hélt Hestamannafélagið Smári sitt árlega Gæðingamót. Félagssvæðið er orðið glæsilegt en þó er ekki búið að ljúka við allar framkvæmdir í kringum völlinn. Staðsetningin er frábær og einnig áhorfendabrekkan. Stjórn Smára á hrós skilið. Það slapp til með veður og tímamörk stóðust svo til fyllilega. Eitt var mjög athyglisvert en það var hversu mikið samræmi var á milli dómara.Annað eins hefur varla sést á mótum hér á landi hvað þá erlendis. Eiga dómarar hrós skilið.
 
Smáramót
           
16.júlí 2009  
Það er ekki algengt að kálfar fæðist nú orði hér á bænum, en þó eigum við 3 holdakýr.Ein þeirra er Anguskýr og hún bar þessum gullfallega kvígukálfi undan kynbótanauti af íslensku kyni frá þeim bræðrum á E-Brúnavöllum. Kálfurinn er því blendingur. Hún fékk nafnið Þorjóna
 
Þorjóna
           
17.júlí 2009  
Seinni tvo dagana vorum við með rekstur. Var á þriðja degi riðið að Brúarhlöðum þar sem Hreinn bóndi á Þórarinsstöðum slóst í för og riðum við áfram heim til hans þar sem Steinunn kona hans tók á móti fólki og hestum. 4.daginn var farið áfram niður Hrunamannahr. fram hjá Flúðum, yfir Álfaskeið og hjá S-Langholti yfir Laxá og þaðan heim. Hestarnir alls 19 og knapar sóðu sig vel. Frábær veðurblíða var alla dagana.
 
Hestaferð
           
17.júlí 2009  
Heimilisfólkið ( sex manns) brá sér í fjögurra daga hestaferð.Fyrri tvo dagana teymdum við hestana og var lagt af stað upp í Tungur og að Miklholti þar sem gæðingarnir fengu að vera yfir nóttina.Annan daginn riðum við svo að Brattholti og þáðum höfðinglegar móttökur þeirra heiðurshjóna Njarðar og Láru.
 
Hestaferð
           
14.júlí 2009  
Tign kastaði bleikálóttu hestfolaldi undan Stæl frá Neðra- Seli. Það hefur hlotið nafnið Sæll. Folinn er fríður og með flottar hreyfingar og hágengur.
 
Sæll
           
30.júní 2009  
Hér er mynd sem Märta í Svíþjóð sendi okkur af sér á stóðhestinum Kosti. Kostur er 5. vetra, undan Glettu og Forseta.Hann fór út haustið 2006 en þá höfðum við notað hann á tvær hryssur hér heima.Hér á myndinni eru Kostur og Märta að taka þátt í sínu fyrsta móti þar sem þau lentu í 1.sæti í tölti og 4. sæti í 4-gangi.Til hamingju með þennan árangur,Märta og Kostur.Í vor fæddist okkur albróðir Kosts en hann er jarpskjóttur.
 
Kostur og Märta.
           
30.júní 2009  
Nadja í Svíþjóð sendi okkur þessa mynd af sér á honum Gljáa.Hann er 4.vetra stóðhestur sem hún keypti af okkur árið 2006.Gljái er undan Kolbrúnu og Álfasteini.Hún stefnir að því að sýna Gljáa síðsumars. Það er alltaf gaman af því að fá sendar myndir af hrossum sem við höfum selt til annarra landa, sérstaklega þegar að eigendur eru ánægðir.
 
Gljái og Nadja.
           
29.júní 2009  
Við feðgarnir höfum verið að ganga frá lóðinni í kringum ferðaþjónustuhúsið. Jón Emil er að setja niður trjáplöntur sem seinna meir eiga að vera falleg skjólbelti.Þá eigum við von á þökum i næstu viku til að tyrfa blettinn með.
 
Jón Emil að planta.
           
27.júní 2009  
Þá er heyskapur hafinn á bænum en við slóum vel sprottinn blett í gær.Stefanía rifjaði upp gamla takta með hrífuna og rakaði inn úr hornunum og frá girðingum þar sem nýtísku vél náði ekki til.
 
Heyskapur hafinn
           
25.júní 2009  
Í kvöld vorum við viðstödd nafngift dóttursonarins hjá Ásatrúarmönnum. Athöfnin fór fram í góðu veðri í Almannagjá á Þingvöllum. Drengurinn fékk nafnið Birnir Snær.Á eftir var skemmtidagskrá í samkomutjaldi á svæðinu og voru þar kveðnar rímur og sungið.Á myndinni til hliðar eru frá vinstri:Hilmar Alsherjargoði, Margrét, Birnir Snær og Sæþór.
 
Nafngift á Þingvöllum
           
24.júní 2009  
Þá er komið folald hjá Snerpu og það er tvístjörnóttur hestur undan Hágangi frá Narfastöðum. Þetta er stórglæsilegt folald í alla staði og ekki eru hreyfingarnar síðri.
 
Sonur Snerpu
           
23.júní 2009  
Píla kastaði í dag. Hún átti hryssu, rauðstjörnótta. Hún er undan Hlekk frá Lækjamóti.Þetta er fyrsta folaldið hjá Pílu. Það er ekki stórt en snoturt. Nú eru fædd 12 folöld hjá okkur og þar af aðeins 4 merfolöld.
 
Píla og dóttir
           
20.júní 2009  
Fyrir 30 árum tóku þeir sig til Björn í Vorsabæ 2 og Gunnar Ágústsson núverandi bóndi á Galtastöðum að reka tamningastöð.Fengu þeir leigðan mýrarskika af Andrési í Útverkum. Ekki þætti aðstaðan góð nú til dags.Það var slegið upp gerði til að reka hrossin í og svo var þessi símastaur notaður til að lónsera hestana.Við hittumst á þessum merku tímamótum og rifjuðum upp frækin afrek skoðuðum aðstæður og svo var grillað um kvöldið.
 
Útverkagengið
           
19.júní 2009  
Í dag kastaði Kolbrún rauðtvístjörnóttu hestfolaldi. Það er undan Grunni frá Grund.Folaldið er stórt og myndarlegt og hreyfir sig skemmtilega. Kolbrún fer svo undir Mjölni frá Hlemmiskeiði.
 
Sonur Kolbrúnar
           
14.júní 2009  
Gola er móálótt vindótt hryssa sem við keyptum af Tryggva í Bár í fyrra.Henni héldum við svo undir Forseta og nú er fæddur bleikvindóttur sonur þeirra.Ef grant er skoðað þá örlar fyrir stjörnu í enni. Hann er mikið fínlegur og fríður og fer aðallega um á brokki en bregður fyrir sig tölti á hátíðisdögum.
 
Golusonur
           
11.júní 2009  
Prinsessu var haldið undir Segul í fyrra og við sónarskoðun í greindist hún tvífylja. Seinna um sumarið þegar að hún var sónuð aftur sást bara eitt fóstur og nú er það búið að skila sér í heiminn.Það fæddist jarptvístjörnótt hestfolald sem getur hugsanlega verið litförótt eins og pabbinn.Það kemur í ljós síðar.Folaldið er búið að fá nafnið Tvistur, hvað annað!
 
Prinsessa og Tvistur
           
10.júní 2009  
Hrina kastaði móálóttu nösóttu hestfolaldi í morgun. Folaldið er undan Stæl frá Neðra-Seli, Stálasyni. Þetta er þriðja folaldið hjá Hrinu en fyrir á hún tvær dætur en við erum einmitt að byrja að frumtemja þá eldri sem heitir Silfurdís.Sigurbjörg Bára á Hrinu og hún er þegar búin að gefa hestfolaldinu nafn en það á að heita Hrymur.Hann er frekar grannbyggður og getur sperrt sig mikið ef hann er í þannig stuði.
 
Hrymur
           
6.júní 2009  
Og þá er komið að því að taka húsið í notkun en stóðhestur búsins fékk það hutverk að vígja húsið.Seinna um daginn rákum við svo að stóðið og rifum inn fullt af hestum enda tamningafólkið mætt og beið eftir verkefnum.
 
Forseti leiddur inn.
           
6.júní 2009  
Við feðgarnir höfum svo verið að hamast við að setja plastið í innréttingarnar. Það þarf að kutta ansi mörg plastborð enda fer í húsið um 4 tonn af plasti.Plastið var keypt í Líflandi.
 
Plast komið í.
           
6.júní 2009  
Undanfarna daga hafa þeir hjá Viðgerðum og Þjónustu á Selfossi verið að setja upp innréttingar í hesthúsið. Þetta er mjög vandað og flott hjá þeim.
 
Uppsetning innréttinga
           
6.júní 2009  
Tíska kastaði sínu fyrsta folaldi í gær. Tíska er sérstök á litinn einhvern vegin muskótt, lítur út eins og hún sé móvindótt, undan rauðri hryssu og glóbúnlitföróttum hesti. Folaldið er nákvæmlega eins og hún á litinn en það er hestfolald og er undan Forseta.
 
Tísku sonur.
           
6.júní 2009  
Kolfreyja var höfð inni í vetur þar sem hún er orðin gömul og hefur alltaf fóðrast frekar illa á útigangi.Kolfreyja er ein af okkar uppáhalds merum og hefur skilað mörgum góðum afkvæmum í gegnum tíðina.Hún kastaði svo rauðstjörnóttu merfolaldi í nótt undan Forseta.Það er ansi frítt. Sennilega er þetta seinasta folald Kolfreyju.
 
Kolfreyju dóttir.
           
4.júní 2009  
Í dag kastaði Hviða rauðblesóttu sokkóttu merfolaldi.Folaldið er stórt og hreyfingamikið.Við erum sérstaklega ánægð með að fá merfolald í þetta skiptið. Þetta er fjórða afkvæmið sem Hviða eignast með Forseta.
 
Hviða og dóttir
           
31.maí 2009  
Fermingarveisla Sigurbjargar var haldin í Brautarholti. Mættu þar vinir og ættingjar og fögnuðu með okkur góðum degi.
 
Sigurbjörg Bára við veisluborðið
           
31.maí 2009  
Stór dagur hjá Sigurbjörgu Báru. 2 börn voru fermd í Ólafsvallakirkju í dag. Á myndinni eru frá vinstri Skafti Bjarnason, Camilla Fors, Karl Gustaf Skaftason, Sigurbjörg Bára Björnsdóttir, Björn Jónsson, Stefanía Sigurðardóttir og presturinn Axel Árnason Njarðvík.
 
Ferming
           
28.maí 2009  
Stirnir er tveggja vetra foli undan Kolbrúnu og Stála. Við settum hann í dag út í hólf með þremur hryssum og við munum bæta við fleiri hryssum eftir því sem þær verða tilbúnar. Ef hryssueigendur hafa áhuga á að halda undir Stirni þá geta þeir haft samband við okkur.
 
Stirnir
           
27.maí 2009  
Nú er það frágengið að Hlekkur frá Lækjamóti verður hjá okkur í sumar.Hann er undan Álfi frá Selfossi og Von frá Stekkholti. Hann hefur verið hjá Erlingi í Langholti í vetur og fyrirhugað er að Hlekkur verði sýndur á Hellu nú í júní.Við ætlum að leiða undir hann all nokkrar hryssur.Örfá pláss eru laus ef menn hafa áhuga á að koma hryssum undir hann.
 
Hlekkur Lækamóti
           
25.maí 2009  
Í nótt kastaði Gletta og hún átti jarpskjótt hestfolald undan Forseta.Veðrið var mjög leiðinlegt rigning og kuldi og þorðum við ekki annað en að vakna öðru hvoru og fylgjast með hvort að hún myndi kasta. Um þrjúleitið var folaldið komið og ákváðum við þá að fara með þau mæðginin inn í reiðhöll.
 
Glettusonur
           
23.maí 2009  
Slaufa kastaði í dag rauðstjörnóttri hryssu. Hún er undan Hlekk frá Lækjamóti. Hún virðist vera frekar klárgeng og myndarlegasta folald.
 
Slaufudóttir
           
23.maí 2009  
Gústi og Jón Emil eru búnir með milliveggina í aðstöðunni.Í dag hefur Björn svo verið að grunna og sparsla og á morgun er meiningin að mála þá.
 
Jón Emil
           
22.maí 2009  
Alltaf er eitthvað um að burður gangi ekki sem skyldi hjá ánum. Eitt lamb sem bar að öfugt við fæðingu urðum við að taka inn til hjúkrunar. Píla tíkin á bænu brást ekki í umönnunni og hélt lambinu félagskap þar til að við gátum náð að venja það undir á.
 
Píla í móðurhlutverki
           
21.maí 2009  
Fyrsti kiðlingurinn fæddist í dag. Hann er gráhöttótt hafurkið. Sigurður Ingason kom í heimsókn í sveitina og tók kiðlinginn tali.
 
Siggi með kiðling
           
21.maí 2009  
Ekki hefur verið hægt að kvarta yfir veðrinu seinustu daga. Sigurbjörg og Jóhanna hafa nýtt sér veðurblíðuna og tamið af krafti. Hér eru þær á frændunum Blossa og Árvakri undan Snjalli og Forseta.
 
Sigurbjörg og Jóhanna
           
20.maí 2009  
Í morgun kastaði Nös. Það fæddist bleikstjörnóttur hestur. Þetta er myndar folald undan Stála frá Kjarri.
 
Stálasonur
           
11.maí 2009  
Þá er sauðburðurinn hafinn. Þó að ærnar séu ekki margar þá þarf að sinna þeim. Fyrsta lambið sem fæddist var mórauð gimbur og hér á myndinni er ungur gestur Viktor Elí að virða fyrir sér gimbrina og búa sig undir að halda á henni en Dagný amma hans er að hjálpa honum . .
 
Sauðburður hafinn
           
8.maí 2009  
Í morgun kastaði fyrsta hryssan í ár, en það var hún Gasaleg-Skutla. Hún átti jarpan hest. Folaldið er búið að fá nafn nú þegar og heitir því virðulega nafni Völundur.Völundur er undan Forseta og er einstaklega háfættur eins og hann hefur kyn til.
 
Gasaleg-Skutla og sonur
           
2.maí 2009  
Sigurvegarinn í karlaflokki var Unnsteinn í Langholtskoti á hestinum Prinsi frá sama bæ. Einstaklega vel uppsettur með fallegum höfuðburði, rúmur,viljugur og þar að auki undan gæðingaföðurnum Hrynjanda frá Hrepphólum.
 
Unnsteinn og Prins
           
2.maí 2009  
Stefanía keppti á Snarra Snjallsyni í kvenna flokki. Það gekk vel en þau urðu ekki á meðal þeirra þriggja efstu. Sigurvegarinn í kvennaflokki var Kristbjörg Kristinsdóttir á Lukku frá Jaðri
 
Stefanía og Snarri
           
2.maí 2009  
Johanna Svenson frá Svíþjóð er komin til okkar aftur að hjálpa til við tamningar en hún var verknemi hér fyrir tveimur árum. Hún keppti í ungmennaflokki á Árvak en fékk ekki röðun þar sem hún keppti sem gestur.
 
Johanna og Árvakur
           
2.maí 2009  
Í dag var firmakeppni Smára haldin á Flúðum. Mikil þátttaka var bæði af keppendum og gestum. Gunnlaugur á Blesastöðum var í fyrsta sæti í ungligaflokki á Tvísti, Sigurbjörg var í öðru sæti á Evítu og í þriðja sæti var Guðjón Örn á Víga-Skjóna.
 
Unglingaflokkur
           
28.april 2009  
Málningavinnan er að verða búin, bara eftir að mála gólfið í hnakkageymslunni.Það hafa ýmsir hjálpað til við það og hér er Jón Emil að mála fyrri umferð á veggina í stíunum. Þá er einnig að verða búið að setja gúmímottur á steyptubitana. Innréttingarnar koma svo í næstu viku og þá verður drifið í því að setja þær upp.
 
Jón málara
           
25.april 2009  
Seinasta punktamót vetrarins var haldið í dag. Heldur minni þátttaka var miðað við fyrri mót. Kannski hafa kosningarnar haft þar einhver áhrif. Sigurbjörg lenti í öðru sæti í samanlögðu. Karen á Blesastöðum var í fyrsta sæti og Gulli á Blesastöðum í þriðja sæti.Í fullorðinsflokki var Unnsteinn í Langholtskoti í fyrsta sæti í samanlögðu á hestinum Prinsi frá sama bæ.
 
Úrslit unglinga
           
11.april 2009  
Nú er búið að múra hesthúsið að innan.Sá sem sá um verkið heitir Jón Sigurðsson og býr hann á Flúðum í Hrunamannahreppi.Hann var snöggur að klára verkið.
 
Jón múrari
           
1.april.2009
 
Af hesthúsinu er það að frétta að það er búið að setja alla glugga og hurðir í húsið. Svo eru Skúli frá Birtingarholti og Sigurður frá Kotlaugum búnir að koma og tengja heita vatnið þannig að nú er kominn ylur í gólfin. Við ákváðum að hafa hitalagnir í bæði stíum og göngum, en síðan er hægt að stjóna því að vild.
 
Sigurður pípari
           
28.mars.2009
 
Þá er búið annað punktamót Smára.Þar sem Segull var haltur þá ákvað Björn að mæta með föðurbróður Seguls Forsetasoninn Árvak. Þeir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu í fullorðinsflokki.Að þessu sinni voru Sigurbjörg og Evíta í öðru sæti í unglingaflokki.Þá var einnig Forsetasonur sigurvegari í unghrossaflokki. Hann var setinn af Gústafi Loftssyni og heitir Úlfur frá Jaðri.
 
Björn og Árvakur