Dvöl á bænum
 
 
Upplifun
Fræðsla Skemmtun
       
Við tökum á móti gestum hluta úr degi eða í nokkra daga og bjóðum upp á gistingu í notalegu húsi sem rúmar allt að 10 manns.
Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu sem miðast við óskir hvers og eins. Fjölbreyttir möguleikar eru í boði.
       
Hægt er að fylgjast með eða taka beinan þátt í störfum dagsins, en störfin á bænum geta verið nokkuð breytileg eftir árstímum. Kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja komast í snertingu við líf og störf á sveitabæ. Gestir geta notið dvalarinnar í tengslum við dýr og náttúru.
Við stundum umfangsmikla hrossarækt, tamningar og sölu á hrossum. Einnig eru á búinu nautgripir, sauðfé, geitur, hundar og kettir. Geitur eru afar sjaldgæfar hér á landi og reyndar telst íslenski geitastofninn í útrýmingarhættu.
       
Á vorin er spennandi að fylgjast með sauðburði og þá fæðast líka kiðlingar og folöld.
Hægt er að taka þátt í ýmiskonar fjárragi, rúningi og smalamennsku.
       
Við höfum hesta við allra hæfi og getum farið í stutta reiðtúra um nágrennið eða teymt undir börnum.
Fyrir þá sem þess óska veitum við leiðsögn við tamningar og reiðmennsku bæði fyrir byrjendur og lengra komna.
Ef þú ert að leita þér að hesti til kaups, þá gætir þú hugsanlega fundið draumahestinn hjá okkur. Við val á hesti er nauðsynlegt að gefa sér góðan tíma. Þá er tilvalið að dvelja í nokkra daga til að prófa hestinn í reið og kynnast honum í umgengni.
       
Við bjóðum upp á 2 klst. reiðtúr að Draugsagjá í landi Vorsabæjar, þar sem sögð er átakanleg draugasaga. Tilvalin ævintýraferð fyrir smáa hópa.
       
Skammt norður af bænum er Vörðufell, en þar er hægt að fara í gönguferðir, t.d. að sérkennilegum fossi eða ganga á topp fjallsins og líta eitt mesta útsýni á Suðurlandi.
       
Boðið er upp á fullt fæði á meðan á dvölinni stendur, þar sem matur er heimilislegur og áhersla er á íslenskt hráefni og þjóðlegan mat. Einnig er í gistihúsinu fullkomin eldunaraðstaða og geta gestir valið um að sjá um mat sjálfir í stað þess að fá mat á heimilinu.
       
Hægt er að taka húsið á leigu út af fyrir sig og þá fylgja uppbúin rúm fyrir fjóra og einnig dýnur á svefnlofti. Rúmgóð verönd er fyrir utan. Upplögð staðsetning fyrir ferðamenn, þar sem stutt er til vinsælla ferðamannastaða svo sem Gullfoss, Geysis, Þingvalla, Skálholts og Þjórsárdals. Aðeins í 2 km. fjarlægð er sundlaug í Brautarholti.
       


Hafið samband um verð og nánari tilhögun.
Upplýsingar veita Björn og Stefanía
Sími 4865522 / 8667420 /8619634

e-mail: bjornjo@vorsabae2.com

<<Heim